Um okkur   Prenta  Senda 

Stinnur rass - sléttur magi

Fit - Pilates leikfimi er í boði víða á Íslandi

Fit - Pilates þjálfar djúpvöðva líkamans, gefur langa fallega vöðva, sléttan kvið, grönn læri, sterkt bak, betri líkamsstöðu og aukinn liðleika.

  • Skemmtilegar æfingar, styrkjandi og móta flottar línur líkamans
  • Enginn hamagangur og læti en virkilega vel tekið á
  • Æfingar á boltanum veita þægilegt vöðva og líffæranudd
  • Fit-Pilates leikfimi fyrir þá sem vilja sjá línurnar verða flottari

Innri vöðvastyrkur, jafnvægi og djúp innri vöðvaþjálfun í Fit - Pilates:

Fit - Pilates þjálfar alla kviðvöðva, vöðva neðra baks, vöðva umhverfis hryggsúluna, lærvöðva að innan og utan, mjaðmir og rassvöðva. Þegar þessir vöðvar hafa styrkst er stoðkerfi líkamans komið með meiri stuðning. Þá uppgötvar fólk nýjan og áður óþekktan styrk og jafnvægi sem nýtist vel í betri líkamsstöðu í daglega lífinu og í öðrum íþróttagreinum. Fólk fær ekki aðeins meiri orku, snerpu og hraða, heldur einnig betri vörn gegn meiðslum vegna fleiri virkra vöðva, betra jafnvægis og meiri liðleika. Áhugavert fyrir afreks fólk í íþróttum sem þarf styrk, liðleika og mýkt til að verða enn betri í sinni íþrótt.

Allir þátttakendur í Fit-Pilates hvar sem er á Íslandi eru að styrkja gott málefni því hlutfall af þátttöku allra fer til góðgerðarstarfssemi s.s. www.shoe4africa.org


Um okkur Myndir Námskeið Hafa samband
| Fit pilates á Íslandi | Gsm: 896 2300 | info@fitpilates.org | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun